Janúar
21 Jan 2019
Góðan dag
Í dag byrjaði Þorravika og er margt á dagskrá í vikunni m.a fræðast um Þorrann og gömlu tímana og smakka Þorramat, Í dag skoðuðum við þjóðbúningana, skjaldamerkið og töluðum um landvættina. Einnig fengu þeir sem vildu að smakka súra hrútspunga.
Vil minna á Bóndadagskaffið á föstudaginn milli 8 - 9:30
Þorrablótið hefst svo klukkan 10 í salnum
Hér er listi yfir þau lög og þulur sem við erum að læra þennan mánuðinn:
- Krummi krunkar úti
- Krummi svaf í Klettagjá
- Þorraþrællinn
- Á Sprengisandi
- Mér er kalt á tánum
- Nú er úti Norðanvindur
- Í Hlíðarendarkoti
- Á Þorrablóti er gleði og gaman
- Frost er úti fuglinn minn
- Ausutetur
- Krumminn á skjánum
Þar sem það er mikil hálka í garðinum væri mjög gott að koma með brodda þ.e ef börnin eiga.
Bestu kveðjur
Starfsfólk á Stjörnudeild