news

Gaman, gaman - sullum saman!

25 Jún 2019

Gaman, gaman - sullum saman hljómar lag sem börnin í leikskólanum sömdu og sungu dátt í útiverunni eftir hádegi í dag. Sólin kom svo sannarlega í heimsókn og hitinn fylgdi með. Við brugðum því á það ráð að taka sullukörin okkar með okkur út og fylla þau af vatni og sápu. Úr varð mikið fjör eins og sést má á myndinni.

Við munum svo sannarlega endurtaka leikinn þegar sólin skín á okkur og því gott að hafa aukaföt með sér og muna eftir sólarvörninni!