news

Ljósmyndir og nýtt starfsfólk

12 maí 2021

Nú ættu allir foreldrar eða forráðamenn aðað vera búnir að fá tölvupóst frá Myndsmiðjunni á netfangið sem þeir gáfu upp með upplýsingum um pantanir á ljósmyndum úr myndatökunni. Athugið að mögulegt er að pósturinn hafi lent í ruslpósti. Frestur til að panta mynd er til 16. maí. Ef einhverjir eru í vandræðum, endilega talið við deildarstjóra á deild barnsins ykkar.

Tveir nýjir starfsmenn hófu störf á leikskólanum nýverið og eru það þau Bjarki Flóvent og Ylfa Beatrix. Þau ætla að vinna hjá okkur í sumar og bjóðum við þau hjartanlega velkomin til starfa.