news

Fyrsta vikan eftir sumarfrí

20 Ágú 2021

Þá er fyrsta vikan eftir sumarfrí liðin og hefur hún gengið vel. Aðlögun hófst á mánudaginn og heldur hún áfram næstu vikurnar.

Það er frábært að vera byrjuð aftur og við bjóðum öll þau börn og foreldra sem eru að koma ný á leikskólan hjartanlega velkomin.

Fyrstu vikurnar fara í að kynnast, bæði börn og starfsfólk en svo byrjar hópastarfið af fullu í byrjun september og þá verða einnig foreldraviðtöl á flestum deildum.

Við minnum svo á að hafa nóg af fötum til skiptana í hólfunum, bæði útiföt og inniföt, við vitum aldrei hvað veður okkur verður boðið uppá :)