news

Útskrift

23 maí 2023

Í dag var útskrift í leikskólanum, virkilega skemmtileg og notaleg stund með útskriftarbörnum og foreldrum þeirra. Börnin voru búin að baka kökur fyrir foreldra sína. Foreldrar komu færandi hendi með allskonar mat fyrir starfsfólk á kaffistofuna. Virkilega fallegt af þeim. Takk fyrir okkur kærlega. Í hádegismatnum borðuðu útskriftarnemar og kennararnir þeirra saman í matsalnum. Öll börn fengu birkiplöntu frá leikskólanum til að get gróðursett í garðinum sínum og fylgst með henni vaxa og dafna. En það er búið að vera virkilega gaman að fylgjast með útskriftarhópnum vaxa og dafna hér í leik og starfi og færum við þeim hjartans þakkir og foreldrum þeirra. Það eru forréttindi að vinna í leikskóla og fá að kynnast svona mörgum og læra margt af börnum, foreldrum og starfsfólki, eigið góðan dag Maríanna