news

að drepa á bílnum, loka hliðum og nota gangstéttir

26 Nóv 2018

Kæru foreldrar,

ég vil biðja ykkur um að drepa á bílunum og passa að loka hliðunum. Það hefur þó nokkuð borið á því að bílar eru skildir eftir í gangi út á bílastæði. Einnig var lögreglan búin að taka eftir því að foreldrar eru að labba yfir bílastæðin með börnin í stað þess að nota gangstéttir. Mikilvægt að vera strax fyrirmynd í þessu og nota gangstéttir.

Bestu kveðjur Maríanna